✕

DK-tenging, Vefhönnun, Vefþróun, Vefverslun

Ferskt, glatt, mexíkóskt

Serrano
Serrano

Áskorunin

Serrano er íslensk skyndibitakeðja, stofnuð 2002, sem býður fjölbreytta rétti innblásna af mexíkóskri matargerð. Vörumerkið er vel þekkt á Íslandi sem hollur kostur til að taka með. Færa þurfti netpantanir úr appi sem var farið að úreldast, bæði gagnvart almenningi og innri kerfum. Við buðumst til að smíða nýjan og nútímalegan vef tengdan sölukerfinu svo netsala og sala í verslunum tali saman.

Skoða vefinn
  • Vöruflokkar Serrano
    Yfirlit vöruflokka
  • Serrano
    Vörusíða
  • Serrano
    Vörusíða (sími)
  • Vörusíða Serrano í síma
    Búðu til þinn eigin rétt

Lausnin

Við smíðuðum nýjan vef fyrir netpantanir á alla 10 staði Serrano á Íslandi og tengdum hann við sölukerfið (DK Plus) fyrir hverja vöru á matseðlinum. Við bættum líka við nýjum möguleika þar sem viðskiptavinir blanda saman hráefnum af matseðlinum til að búa til sinn eigin rétt: burrito, taco, salat eða quesadillu.

Góð afköst vefsins og betri notendaupplifun hafa skilað aukinni sölu á netinu.

Vildarkort

Vel heppnuð tenging við vildarkort Serrano, punktakerfi þar sem viðskiptavinir fá punkta í hvert sinn sem þeir versla hjá Serrano, hvort sem er á staðnum eða á netinu.