✕

Steindal

A website and trade shop for Steindal, a wholesaler supplying Icelandic retailers and food service since 2019.

Vefur og heildsöluverslun fyrir Steindal, heildsölu sem hefur þjónað verslunum og veitingarekstri á Íslandi frá 2019.

Þjónusta Þjónusta
Vefhönnun Vefþróun
Industry Atvinnugrein
Heildsala
Year Ár
2024
Live site Vefurinn
https://steindal.is

Challenge Áskorunin

Steindal imports and distributes drinks, food and nicotine pouches in Iceland, from Red Bull and San Pellegrino to TÖST, Fentimans, Happy Monkey and El Taco Truck. Its customers are shops, restaurants and other businesses, not the public.

The website had to present the brands well, give trade customers a quick way to find and order products, and keep prices for customers with an account.

Steindal flytur inn og dreifir drykkjum, matvöru og nikótínpúðum á Íslandi, allt frá Red Bull og San Pellegrino til TÖST, Fentimans, Happy Monkey og El Taco Truck. Viðskiptavinirnir eru verslanir, veitingastaðir og önnur fyrirtæki, ekki almenningur.

Vefurinn þurfti að sýna vörumerkin vel, gefa fyrirtækjum fljótlega leið til að finna og panta vörur og sýna verð aðeins þeim sem eru með aðgang.

Vefverslunarsíða Steindals á tölvuskjá á sandlituðum fleti. Fjallamerki er efst til vinstri við hlið valmyndartengla og innskráningarhnapps, með vöruflokkaflipum fyrir neðan. Undir fyrirsögninni er borði um tilboð og síðan rist af vöruspjöldum með San Pellegrino-flöskum, Red Bull-dósum og kippum og Happy Monkey-þeytingum, hvert með vörunúmeri.

Approach Nálgunin

The homepage leads with the brands: a short line in light Figtree, then the brands’ own campaign video, product cards and photo tiles, on a calm base of dark brown, gold and white. Two buttons stay in the header throughout: apply for a trade account, and log in.

The shop is organised by product group and by brand, and every product carries its item number. Visitors can browse the whole range; prices and ordering appear once a business logs in to its account pages.

Forsíðan setur vörumerkin í forgrunn: stutt setning í léttu Figtree, síðan kynningarmyndbönd vörumerkjanna sjálfra, vörukort og myndreitir, á rólegum grunni í dökkbrúnu, gylltu og hvítu. Tveir hnappar eru alltaf í hausnum: sækja um viðskipti og innskráning.

Verslunin er flokkuð eftir vöruflokkum og vörumerkjum og hver vara ber vörunúmer. Allir geta skoðað vöruúrvalið, en verð og pöntun birtast þegar fyrirtæki skráir sig inn á mínar síður.

Afmörkuð mynd af forsíðu Steindals sem sýnir tvö hvít vöruspjöld á ljósgráum fleti. Á vinstra spjaldinu er Red Bull White Edition-dós, fyrirsögnin „White Edition ! Kókos og bláberjabragð“, ör niður og gylltur hnappur merktur Vefverslun. Hægra spjaldið, með ljósblárri Zero-dós, er skorið af.Sími á ljósgráum fleti sýnir vefverslun Steindals með fjallamerki, hamborgaravalmynd og vöruflokkastiku efst. Undir fyrirsögninni „Vefverslun“ er ljós borði með gjallarhornstákni sem vísar á tilboð og síðan tveggja dálka rist af vöruspjöldum með vörunúmerum, San Pellegrino-flöskum og Red Bull-dósum.

Product cards on the homepage, and the trade shop on a phone.

Vörukort á forsíðunni og heildsöluverslunin í síma.

Fimm símaskjáir af vef Steindals skarast á drapplituðum bakgrunni. Miðskjárinn sýnir fjallamerkið, hamborgaravalmynd, fyrirsögnina „Framsækin heildsala“ og myndir af Red Bull-dós og TÖST-flösku. Hinir sýna vöruyfirlit vefverslunar, borða fyrir El Taco Truck, Happy Monkey-þeytinga og fót með samskiptaupplýsingum.
Hönnunarkerfi Steindals á ljósum bakgrunni. Til vinstri eru letursýni úr Figtree í þyngd 300 og 500, hvert með stóru Aa, íslenskum sérstöfum og tölustöfum. Til hægri eru fimm litaprufur merktar Bark, Gold, Navy, Mist og White með hex-kóðum. Fyrir neðan eru spjald með mynd, hnappar og leiðarstika vefsins með fjallamerkinu.

Útkoman Niðurstaðan

Steindal’s full range, 91 products under ten brands, is now online in one shop that businesses can browse at any time.

New customers apply from the header, existing ones log in to see their prices and order, and the same pages work on a phone in the stockroom and a desktop in the office.

Allt vöruúrval Steindals, 91 vara undir tíu vörumerkjum, er nú á netinu í einni verslun sem fyrirtæki geta skoðað hvenær sem er.

Nýir viðskiptavinir sækja um úr hausnum, núverandi viðskiptavinir skrá sig inn til að sjá verð og panta, og sömu síður virka í síma á lagernum og á tölvu á skrifstofunni.

Forsíða Steindals á þremur skjám sem skarast á sandlituðum bakgrunni. Tölvuútgáfan sýnir fjallamerki, valmyndartengla, innskráningarhnapp og fyrirsögnina „Framsækin heildsala…“ fyrir ofan mynd af hrímaðri hvítri dós merktri „The White Edition“. Spjaldtölva og sími endurtaka uppsetninguna og bæta við mynd af flöskum í haustlandslagi.

In numbers Í tölum

91

vörur í heildsöluversluninni

10

vörumerki í valmynd verslunarinnar

3

vöruflokkar: drykkir, matvara og nikótínpúðar