✕

Vefhönnun, Vefþróun

Kjörin umgjörð til að leysa áskoranir morgundagsins.

Reykjavík Science City

Um okkur

Reykjavík Science City kynnir verkefni sem miðar að því að gera Reykjavík að alþjóðlegri miðstöð vísinda, nýsköpunar og rannsókna. Vefurinn sýnir hvernig borgin eflir samstarf háskóla, rannsóknastofnana, fyrirtækja og opinberra aðila á sviðum á borð við tækni, lífvísindi og endurnýjanlega orku. Þar eru upplýsingar um verkefni, aðstöðu og tækifæri sem ætlað er að efla vísindi og frumkvöðlastarf í Reykjavík, og borgin kynnt sem kraftmikið umhverfi fyrir nýsköpun og þekkingu.

Skoða vefinn

Okkar hlutverk

  • Upplýsingareitir
  • Víðari litapalletta
  • Upplýsingar dregnar fram með ólíkum einingum

Hlutverk lita og leturs

Litir og letur á vef Reykjavík Science City gegna lykilhlutverki í að miðla sýn og markmiðum vörumerkisins. Með því að sameina einfaldleika og nútímaleika skapar hönnunin aðlaðandi og faglegt yfirbragð sem fangar athygli markhópsins.

Eitt helsta markmið Reykjavík Science City er að laða að fjárfesta, frumkvöðla og rannsakendur, fólk sem getur stuðlað að þeirri sýn borgarinnar að verða alþjóðleg miðstöð vísinda og nýsköpunar. Til þess notar vefurinn vandlega valda litapallettu og nútímalegt letur sem vekur hugmyndir um framþróun, nýsköpun og traust.

Hreinir, nútímalegir litir á borð við fjólublátt og blágrænt styðja við efni vefsins og undirstrika áherslu borgarinnar á rannsóknir og nýsköpun á þessum sviðum. Aðrir tónar bæta litina upp, svo sem hvítt eða ljósgrátt letur, sem tryggir skýrleika, einfaldleika og góðan læsileika.

Í heild hjálpar hönnun vefsins við að kynna Reykjavík sem nútímalegan og kraftmikinn stað sem hentar vel fyrir framsækið starf á sviði vísinda, tækni og viðskipta. Með einfaldri og aðlaðandi fagurfræði miðlar vefurinn metnaði borgarinnar til að vera í fremstu röð í nýsköpun og höfðar um leið til rétta markhópsins: þeirra sem eru tilbúnir að fjárfesta í framtíð borgarinnar.