
Avista kynnir með stolti vel heppnað verkefni í vefhönnun og vefþróun: kjotkompani.is, vefverslun fyrir kjötunnendur. Vefurinn er byggður á WordPress og einfaldar kaupferlið fyrir viðskiptavini um leið og hann léttir reksturinn fyrir eigendurna. Hann er tengdur við DK, sem eykur skilvirkni, og býður gjafakort sem nota má bæði á netinu og í verslun.
Skoða vefinnSkilvirk vefverslun
Meginmarkmiðið var þægileg og skilvirk vefverslun fyrir Kjötkompaní þar sem notendur geta á einfaldan hátt skoðað, pantað og notið uppáhaldskjötsins og sælkeravaranna. Avista lagði áherslu á að bæta ferðalag notandans og einfalda kaupferlið.
Tenging við DK
Til að einfalda reksturinn að baki tengdi Avista vefinn við DK. Tengingin dregur verulega úr vinnu eigendanna og tryggir skilvirkara og villulaust ferli frá pöntun til afhendingar.
Tímasparandi lausn
Tími eigenda og viðskiptavina er dýrmætur. Með nýja vefnum þurfa viðskiptavinir ekki lengur að bíða í röð heldur fá þægilegan og tímasparandi valkost, sem bætir upplifun þeirra í heild.
Gjafakort
Avista innleiddi öfluga gjafakortalausn svo viðskiptavinir geta keypt og notað gjafakort bæði á netinu og í verslun. Það eykur sveigjanleika fyrir viðskiptavini og styrkir tryggð við vörumerkið.
Notendavænt viðmót
Avista lagði áherslu á hreina og notendavæna hönnun svo viðskiptavinir eigi auðvelt með að rata um vefinn, finna það sem þeir leita að og ljúka kaupum með lítilli fyrirhöfn.
Virkar á öllum tækjum
Vefurinn lagar sig að öllum skjástærðum og veitir samræmda og ánægjulega verslunarupplifun, hvort sem viðskiptavinir nota tölvu, spjaldtölvu eða síma.
Samstarf Avista og Kjötkompanís skilaði vefverslun sem stóðst væntingar og gott betur. Tengingin við DK hefur einfaldað ferlin að baki og notendavæn hönnunin hefur bætt verslunarupplifun viðskiptavina.