✕

Mosfellsbær

Mosfellsbær’s website, relaunched in 2025 on Kolofon’s design system: one place for residents, administration and community life.

Vefur Mosfellsbæjar, endurnýjaður 2025 á hönnunarkerfi Kolofon: einn staður fyrir íbúa, stjórnsýslu og mannlíf.

Þjónusta Þjónusta
Vefhönnun Vefþróun
Industry Atvinnugrein
Sveitarfélög
Year Ár
2025
Live site Vefurinn
https://mos.is
Partners Samstarfsaðilar

Challenge Áskorunin

Mosfellsbær runs its services, its administration and a busy calendar of town life through one website. Residents come to it to apply for services, check waste collection or pool hours, read council minutes and follow what is happening in town.

For the 2025 relaunch the town had a design system from Kolofon. Our job was to turn it into a working website: design the pages and templates from its parts, and build it. The site had to hold a large amount of structured content, from forms and requests to rules, bylaws and years of news, and still let a resident find the one thing they came for in a few steps.

Mosfellsbær heldur úti þjónustu sinni, stjórnsýslu og fjölbreyttu mannlífi á einum vef. Íbúar koma þangað til að sækja um þjónustu, skoða sorphirðu eða opnunartíma sundlauga, lesa fundargerðir og fylgjast með því sem er að gerast í bænum.

Fyrir endurnýjun vefsins 2025 hafði bærinn hönnunarkerfi frá Kolofon. Okkar verk var að gera úr því vef sem virkar: hanna síður og sniðmát úr einingum kerfisins og smíða vefinn. Hann þurfti að halda utan um mikið af skipulögðu efni, allt frá umsóknum og beiðnum til reglna, samþykkta og frétta margra ára, og samt leyfa íbúum að finna það sem þeir leita að í fáum skrefum.

A desktop browser view of the Mosfellsbær website on a green background. The header shows the logo, menu items Íbúar, Stjórnsýsla and Mannlíf, a "Mínar síður" button and a search icon. Below the heading "Þróunarverkefni" and a breadcrumb trail sit two cards with aerial photographs of a sports centre and a residential area, labelled below each image.

Approach Nálgunin

The navigation is three words: Íbúar, Stjórnsýsla, Mannlíf (residents, administration, community life). Each opens a full menu of its section. The homepage leads with one story, then quick links to the tasks people come for most, then news, notices, events and meeting minutes, each with a link to its full archive.

Forms, rules and bylaws, events and projects are their own content types, so each is listed, filtered and linked the same way wherever it appears. Kolofon’s system sets the tone: GT Ultra Median for headings, Theinhardt for text, on a green and white base. In the build, long Icelandic headings break at syllables rather than mid-word.

Valmyndin er þrjú orð: Íbúar, Stjórnsýsla og Mannlíf. Hvert þeirra opnar heila valmynd síns hluta. Forsíðan byrjar á einni frétt, síðan koma flýtileiðir í þá þjónustu sem fólk leitar oftast að og loks fréttir, tilkynningar, viðburðir og fundargerðir, hvert með tengli í sitt safn.

Umsóknir, reglur og samþykktir, viðburðir og þróunarverkefni eru hvert sín efnistegund, svo þau eru birt, síuð og tengd á sama hátt hvar sem þau birtast. Hönnunarkerfi Kolofon gefur tóninn: GT Ultra Median í fyrirsögnum og Theinhardt í texta, á grænum og hvítum grunni. Í smíðinni skiptast langar íslenskar fyrirsagnir á atkvæðaskilum en ekki í miðju orði.

Nærmynd af fréttahluta forsíðu Mosfellsbæjar undir fyrirsögninni „Fréttir“. Þrjú spjöld eru hlið við hlið: loftmynd af grænum túnum og votlendi við ströndina, fjórir brosandi einstaklingar á gangi í matvöruverslun, einn með möppu, og börn í bleikum búningum á hjólum. Hvert spjald ber dagsetningu í september 2026, fyrirsögn og hringlaga örvahnappa.Símaskjár sýnir vef Mosfellsbæjar með þríhyrndu hnútmerki, valmyndartenglum fyrir Íbúar, Stjórnsýsla og Mannlíf og grænum hnöppum fyrir aðgang og leit. Fyrir neðan er fyrirsögnin „Þróunarverkefni“ og brauðmolaslóð. Neðar sýnir loftmynd sundlaug, íþróttahús og bílastæði fyrir ofan heiti verkefnis.

The news on the homepage, and development projects on a phone.

Fréttir á forsíðunni og þróunarverkefni í síma.

Five phone screenshots overlap side by side on a green background. The front one shows a Mosfellsbær news item with cyclists in pink outfits and the heading "Íbúar ánægðir með Í túninu heima". Others display an artworks page with contents list, a development projects page with an aerial photo, a dated meeting minutes table, and footer contact details.
Hönnunarkerfi Mosfellsbæjar: tvö letursýni, GT Ultra Median 300 og Theinhardt 400, með Aa, íslenskum sérstöfum og tölustöfum. Til hægri eru sex litaprufur, Ink, Green, Pine, Sun, Mint og White, með hex-kóðum. Hvítt spjald fyrir neðan sýnir græna hnappa, leiðarstiku vefsins með Íbúar, Stjórnsýsla og Mannlíf og fréttaspjald með loftmynd.

Útkoman Niðurstaðan

Mosfellsbær now keeps 190 pages, 142 forms and requests, 90 rules and bylaws and more than 2,600 news items in one structure, with every service one menu away from the homepage.

The same layout carries every page from a phone to a desktop screen.

Mosfellsbær heldur nú utan um 190 síður, 142 umsóknir og beiðnir, 90 reglur og samþykktir og yfir 2.600 fréttir í einni uppbyggingu, og öll þjónusta er einni valmynd frá forsíðunni.

Sama uppsetning ber allar síður, í síma jafnt sem á tölvuskjá.

The Mosfellsbær homepage appears on a desktop screen with tablet and phone renderings overlapping it against a green background. A navigation bar carries Íbúar, Stjórnsýsla and Mannlíf plus a login button and search icon. The headline "Íbúar ánægðir með Í túninu heima" sits beside a photo of people in pink outfits with bicycles. Shortcut links and a notice bar follow.

In numbers Í tölum

190

síður um þjónustu og upplýsingar

2.628

fréttir frá 2019

142

umsóknir og beiðnir á netinu

90

reglur og samþykktir