
Vinsældir Local á Íslandi kölluðu á vefverslun og við erum stolt af því að hafa gert hana að veruleika í nánu samstarfi við teymi Local. Eitt helsta markmiðið var nýr vefur sem endurspeglar persónuleika vörumerkisins, skemmtilegan, ungan og hollan, en jafnframt vefverslun með áberandi hönnun sem gerir pöntunarferlið þægilegt fyrir notandann.
Skoða vefinnÁ eldri vef Local var ekki hægt að panta vörur. Hægt var að senda skilaboð vegna hóp- eða veislupantana en ekkert meira. Heildstæð vefverslun krafðist ekki aðeins snjallrar hönnunar og vandaðrar forritunar heldur líka hnökralausrar tengingar við sölukerfið og pantanakerfið. Tengja þurfti netpantanir við tvennt: í fyrsta lagi að pöntunin birtist í pantanakerfi hvers staðar fyrir sig og í öðru lagi að viðskiptavinurinn fengi tölvupóst með kvittun og SMS þegar pöntunin væri tilbúin til afhendingar á völdum stað.
Fjölbreytt myndefni með girnilegum myndum af matnum og andstæðir litir úr litapallettu vörumerkisins gerðu okkur kleift að skapa líflegan vef með pöntunarvirkni sem jók sölu Local. Að viðskiptavinir geti sett saman sitt eigið salat og breytt hráefnum í tilbúnum réttum var líka mikil framför, bæði fyrir söluna og ímynd vörumerkisins hjá markhópnum.
Avista hefur staðið sig frábærlega í samstarfinu við Local á okkar stafrænu vegferð. Teymið hefur komið með einstakar lausnir sem mæta þörfum okkar og bregst yfirleitt fljótt við þegar mikið liggur við.
Halldór E. Sigurðsson Framkvæmdastjóri