
Víkingur, hverfisfélag Fossvogs, þurfti nýjan og ferskan vef sem gerði félagið sýnilegra, ekki aðeins stuðningsfólki heldur almenningi öllum. Á vefnum eru upplýsingar um liðna og komandi leiki, leikmenn og þjálfara í ólíkum greinum, og þar geta börn og foreldrar fylgst með öllum yngri flokkum Víkings.
Skoða vefinnSýnilegri vefur, notendavænni upplifun fyrir alla markhópa og aukin sala á varningi félagsins voru meðal þess sem náðist. Sá eiginleiki sem félagið nefndi oftast var yfirlit yfir leiki og úrslit. Það heldur stuðningsfólki upplýstu og fær það til að koma aftur á vefinn til að fylgjast með stigum og leikjum liðsins.
Vefurinn er líka ætlaður foreldrum og flokkum á öllum aldri. Foreldrar finna þar upplýsingar um æfingar, þjálfara, staðsetningar og æfingatöflur og komast í skráningargátt hvers flokks til að skrá börnin sín. Verkefnið var sérlega skemmtilegt fyrir teymi Avista enda flest okkar stuðningsfólk Víkings.
Eitt af markmiðum félagsins var að opna nýja vefverslun eftir að liðið komst í úrslit, með öllum vörum félagsins, svo sem treyjum, húfum, treflum, fótboltum og fleiru. Við tengdum sölukerfi félagsins við vefinn svo sala og birgðir væru á einum stað. Aðlaðandi vefur skilaði aukinni sölu á háannatímanum.